admin

Tennisnámskeið fyrir börn með sérþarfir

Tennisfélag Kópavogs skipuleggur tennisnámskeið fyrir börn og unglinga með sérþarfir.  Námskeiðið hefst 28.janúar og er til 20.maí og er á sunnudögum kl. 13:30-14:30 í Tennishöllinni Dalsmára 13, 201 Kópavogi.  Gert er ráð fyrir að hvert barn sem þarf á liðveislu að halda sé með liðveislu eða foreldra eða forráðamann með sér. Umsjónarmaður námskeiðsins er Lugi

Tennisnámskeið fyrir börn með sérþarfir Read More »

Opnir tímar í vetur

Kvennatímar eru kl. 11:30-12:30 á mánudögum. Opnir tímar (ITN 6-9) verða á miðvikudögum kl. 11:30-12:30 og opnir tímar ITN stig 1-7 eru á mánudögum kl. 12:30 og á föstudögum kl. 11:30. Tekið er sérstaklega vel á móti nýjum þátttakendum. Verð er 1.800 kr. skiptið en ókeypis er fyrir þá sem eru með árskort. Splurggen Splurggen

Opnir tímar í vetur Read More »

Tvíliðaleiksdeild kvenna og karla

Í sumar verður spilað í kvennatvíliðaleiksdeild og karlatvíliðaleiksdeild.  Spilað verður í riðlum og veitt verða verðlaun fyrir besta árangur.  Tvíliðaleiksdeildirnar verða í umsjón Milan Kosicky.  Hvert lið fær boltabox í upphafi sumars og verður svo haldið létt lokahóf/skemmtimót í lok sumars.  Kostnaður er 4.000 kr á mann og er gert ráð fyrir að allir sem

Tvíliðaleiksdeild kvenna og karla Read More »

Jólagjöfin í ár fæst í Tennishöllinni

Hægt er að kaupa gjafabréf í tennis í Tennishöllinni. Gjafabréfið getur innihaldið tennistíma, tennisnámskeið eða einkatíma með þjálfara. Í Tennishöllinni er einnig gott úrval af tennisvörum á góðu verði frá Babolat.  Það eru allir glaðir með að fá skemmtilega hreyfingu í jólapakkann sinn.  Eigum gott úrval af tennisspöðum, tennisskóm og tennistöskum og tennisfötum á jólamarkaði.

Jólagjöfin í ár fæst í Tennishöllinni Read More »

Jólamót Tennishallarinnar og Bikarmót TSÍ 2014

Síðasta mót ársins, Jólamót Tennishallarinnar og Bikarmót TSÍ verður haldið 19-22. desember fyrir börn og unglinga, 27.-30. desember fyrir fullorðna ásamt ITN flokki. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik á mótinu. Dagana 19-22 desember er keppt í : Mini tennis, 10-, 12-, 14-, 16-, og 18 ára og yngri Mótskrá verður tilbúin 18.desember. Mótstjóri er

Jólamót Tennishallarinnar og Bikarmót TSÍ 2014 Read More »