Appið okkar
Í byrjun sumars tókum við upp nýtt bókunarkerfi með það að markmiði að gera padel hjá okkur einfaldara og aðgengilegra fyrir alla. Í kerfinu færðu yfirsýn yfir lausa velli, opna tíma, viðburði og mót á einum stað.
Einnig tókum við upp levelkerfi og í appinu er hægt að skrá sig stakan í opinn leik og gefa öðrum spilurum á svipuðu getustigi tækifæri til að hoppa inn í leikinn.
Markmiðið okkar er að byggja upp virkt padelsamfélag þar sem auðvelt er að finna fólk til að spila með, kynnast nýjum spilurum og komast oftar á völlinn.
Level
Levelkerfið okkar er frá 1–7 og miðast við spilara innan Padelhallarinnar. Þú getur skráð og séð levelið þitt í Padelhöllin appinu undir þínum aðgangi, þar sem stendur „Rating“. Level 1 er fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í padel og level 7 er fyrir atvinnumenn. Levelið hjálpar þér að finna spilara, opna tíma og mót sem passa við þitt getustig.
Ef þú ert ekki viss um þitt level getur þú tekið stuttan spurningalista sem hjálpar þér að áætla hvaða level passar best við þína getu og reynslu:
https://padelhollin-is.matchpoint.com.es/ratingtests/padel
Á næstu dögum mun einnig vera í boði að skrá sig í matstíma hjá þjálfara.
1.0-1.9 Byrjandi (Beginner)
Nýr í padel og er að læra reglur, staðsetningar og grunnslög. Er að ná tökum á uppgjöf og að halda boltanum í leik. Notar veggi lítið eða ekki ennþá.
2.0-2.9 Byrjandi+ (Beginner+)
Getur haldið einföldu rallýi gangandi og hefur grunnskilning á staðsetningu. Uppgjöf og grunnslög eru orðin nokkuð örugg. Byrjaður að nota afturvegg og koma fram að neti, en gerir enn töluvert af óþvinguðum mistökum.
3.0-3.9 Meðal spilari eða Lengra komnir (intermediate)
Hefur góðan skilning á grunnatriðum padels. Getur notað afturvegg í vörn, lobbað markvisst og spilað við netið. Volley og bandeja eru komin inn í leikinn og leikmaður byrjar að byggja upp stig með staðsetningu og taktík.
4.0-4.9 Meðal spilari + eða Lengra komnir + (intermediate+)
Öruggur og taktískur padelspilari með góðan leikskilning og nokkuð stöðuga tækni. Notar veggi og horn í vörn, sækir netið á réttum augnablikum og getur byggt upp stig með lobbum og staðsetningu. Er farinn að nota fjölbreyttari högg og taktík og getur spilað hraðan leik en gerir enn mistök þegar pressa eða hraði eykst.
5.0-5.9 Mjög sterkur spilari eða Meistaraflokkur (Advanced).
Mjög reyndur og tæknilega sterkur leikmaður. Les leikinn vel, stjórnar stigum og notar fjölbreytt högg af öryggi undir pressu. Spilar reglulega sterka keppnisleiki og getur haldið miklum hraða án þess að missa stjórn.
6.0-6.9 Úrvals spilarar eða Meistaraflokkur + (Advanced +)
Afar sterkur keppnis spilari með mjög góða tækni, taktík, hraða og stöðugleika. Keppir á hæsta eða nær hæsta landsstigi og ræður við mjög hraðan og tak tískan leik.
7.0 Atvinnu-/alþjóðastig Leikmaður á atvinnu- eða alþjóðlegu keppnisstigi.
Þetta level á aðeins að við allra sterkustu leikmenn á heimsvísu.
Opnir leikir