Tennishöllin er með 2 myndavélar frá Clutch. Hægt er að hlaða niður app-i og horfa á leiki sem maður hefur tekið upp. Forritið notar gervigreind til að greina leikinn. Myndavélarnar er að finna á bláu völlunum. Unnið er að uppfærslu fyrir padelmyndavélarnar og stefnt er á að setja myndavélarnar upp fyrir padelvellina haustið 2024.
Tennis Iceland facebook síðan er vettvangur fyrir tennis áhugamenn. Á síðunni getur þú leitað ráða, spurt spurninga og leitast eftir fólki til að spila við. Þar að auki virkar síðan sem miðstöð til að auglýsa viðburði, æfingaleiki og mót.
Splurggen er fallegur samruni tónlistar, líkamsræktar og tennis. Í tímum er spilað blöndu af skemmtilegum leikjum sem láta þig upplifa tennis í nýju ljósi.
Mikill félagsskapur fylgir því að vera í Splurggen hópnum. Hópurinn býður upp á fjölda spennandi athafna og viðburða, allt frá árshátíðum og lokahátíðum til að skipuleggja utanlandsferðir.
Árleg útlandaferð Tennishallarinnar er skemmtilegur viðburður opinn öllum tennis og padel spilurum. Þessi ferð býður upp á tækifæri til að spila fjölmarga leiki, fá leiðsögn frá góðum þjálfurum, njóta þess að spila í góðu veðri og slaka á undir sólinni.