Opnir tímar í haust 2026 Í appinu okkar er fjölbreytt úrval af opnum tímum og allir ættu að geta fundið tíma sem hentar þeim!Opnir tímar eru skemmtileg leið til að spila með nýju fólki, kynnast öðrum spilurum og verða hluti af padelsamfélaginu. Hægt er að skrá sig í opna tíma í Padelhollin-appinu, sem er aðgengilegt á App Store og Google Play.Einnig er hægt að skrá sig á bókunarsíðunni okkar hér. Padelhöllin appið Skoðaðu alla lausa tíma, opna tíma og viðburði á sama stað Sækja appið Hvaða tímar eru í boði? Padel Social: Skemmtilegir tímar undir stjórn Luis þar sem blandað er saman padelþjálfun, spilamennsku og tónlist.Parapadel: Spilatímar þar sem þú spilar með sama meðspilara allan tímann. Spilað er eftir mismunandi keppnisfyrirkomulagi.Kvennatímar: Spilatímar fyrir konur þar sem spilað er upp og niður. Opnir tímar: Spilatímar þar sem er spilað upp og niður. Konungur og drottning hallarinnar: Spilatímar með mismunandi fyrirkomulagi. Fleiri tímar: Við bætum reglulega við nýjum og skemmtilegum tímum og viðburðum, svo endilega fylgist með í appinu okkar!