Tennis og padel ferðir í sumar 2026

Tennisferð til Almería 13. - 20. maí

Tennisferð til Almería í frábæru umhverfi  með skemmtilegu fólki. Skráning gengur vel og það eru aðeins nokkur laus pláss eftir. 

Innifalið í ferðinni

 Flug með Icelandair til Málaga (20 kg farangur og 10 kg handfarangur)

  • Rútuferðir til og frá flugvelli og daglega á milli hótels og tennis klúbbs
  • Hótel gisting á 4 stjörnu hóteli
  • Tennis í um 3 klukkustundir á dag
  • Social tennis og sameiginlegir kvöldverðir í klúbbnum
  • Dagsferð í golf, spa og mat á La Envía Golf ( Skráning 18,000 kr aukalega)
Við gistum á hóteli nálægt tennis klúbbnum og leggjum áherslu á einfalt og þægilegt skipulag. 
Almería plaggat

Verð

2 í Superior double room – 300.000 kr./ mann

1 í Superior herbergi – 350.000 kr./mann

Hafið samband við fararstjóra varðandi uppfærslu á herbergi. Hægt er að dreifa greiðslu.

Fararstjórar:

  •  Lusi Carillo Rueda
  • Jónas Páll Björnsson
  • Teitur Ólafur Marshall

Skráning:

Spadaferdir@tennishollin.is

Tennis og padel ferð TFK 3. -10. júní

Tennisfélag Kópavogs fór síðast í keppnis- og æfingaferð til Albir á sama klúbb haustið 2024. IQL er tennis- og padelklúbbur með 10 tennisvelli og 5 padelvelli auk veitingasölu, sundlaug og líkamsræktaraðstöðu.

Ferðin er fyrir börn, unglinga og foreldra. Foreldrum gefst kostur á að skrá sig í tennis eða padel prógram. Þetta er því tilvalin fjölskylduferð!

Colorful Modern Kids Summer Camp Tennis Sport Poster (2)

Upplýsingar

Dagssetning: 3.-10. júní 2026

Staðsetning: Albir á Spáni.

Farastjórn og umsjón: Egill Sigurðsson, Jónas Páll Björnsson og Sofia Sóley Jónasdóttir.

Fyrir hverja er ferðin? Ferðin er fyrir þá tennisiðkendur sem eru byrjaðir að spila á venjulegum velli og byrjaðir að keppa í mótum.

Ferðin er fyrir þá padelspilara sem hafa verið að æfa reglulega og vilja taka leikinn á næsta stig.

Börn þurfa að hafa náð 13 ára aldri til að mega fara í ferðina án forráðamanns

Forrráðamenn geta skráð sig í tennis/padel prógram á sama tíma

Flug og samgöngur

Ferð upp á flugvöll KEF: Ekki innifalið, þátttakendur þurfa að koma sér sjálf upp á völl. Mælst er til þess að mæta amk. 2 klst fyrir flug upp á völl.

Flug út: KEF-ALC kl. 09:55 Flugnúmer FI584

Flug heim: ALC-KEF kl 17:35 Flugnúmer FI585

Rúta frá ALC flugvelli til gististaðar: Innifalið. Rúta keyrir hópinn í 40 mín til Albir á hótelið Albir Playa Hotel & Spa.

Gisting: Albir Playa Hotel & Spa, 4* hótel. Fyrir börn yngri en 18 ára sem ferðast án forráðamanna þurfa forráðamenn að undirrita skjal um að barnið megi gista án þeirra.

Innifalið í ferðinni: Flug með check in farangri. Rútuferð til og frá Alicante flugvallar. 4* Hótel með morgunmat á Albir playa hotel & spa. Vatn og orkustykki og hádegisverður í IQL þrisvar sinnum.

Æfingarfyrirkomulag: Æfingar verða í klúbbnum  IQL, nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar en þjálfarar klúbbsins munu sjá um æfingarnar og skipulag í samráði við íslensku farastjórana.

Keppnisfyrirkomulag: Í vinnslu, auglýst síðar.

Verð: Í vinnslu.

Verðviðmið m.v. 2 í herbergi;

Börn/unglingar: 230.000 kr.

Forráðamenn í tennis/padel: 290.000 kr.

Forráðamenn án prógrams: 200.000 kr.

Tökum fram að samningarviðræður eru í vinnslu en birtum þessar tölur til að gefa hugmynd að því verði sem talið er líklegast.

Takmarkað sætapláss: 

Skráning: Sendu email á  tennis@tennishollin.is með nafn, kennitölu og síma til að tryggja þér sæti í ferðina.

Skjöl : Samþykkisyflirlýsing vegna utanlandsferða barna fyrir undir 18 ára.