Fastir tímar í áskrift

Tennishöllin og Padelhöllin bjóða upp á fasta vikulega tíma í tennis eða padel yfir veturinn. Vetrartímabilið stendur frá 18. ágúst – 31. maí og vortímabilið frá 18. ágúst til 31. desember, en hægt er að ljúka samning eða gera breytingar um áramót. Ef þú vilt panta þér fastan tíma í tennis með vinum eða fjölskyldu er best að hafa samband sem fyrst hér fyrir neðan því það getur verið erfitt að fá tíma með stuttum fyrirvara. Þeir sem fá ekki tíma sem hentar geta farið á biðlista. Við viljum einnig benda á að hægt er að fá þjálfara til að mæta í nokkur skipti til að byrja með ef þú vilt komast vel af stað. 

Við erum sammála um að ekki sé hægt að koma sér upp betri venju en að vera með fastan vikulegan tíma í tennis eða padel.  Verð fyrir fasta tíma má sjá í verðskránni.

Athugið að Tennishöllin og Padelhöllin áskilja sér rétt til að hliðra vallarbókunum ef þarf.