Haustmót Padelhallarinnar 2026

Stórmót

20. - 22. nóvember

Þá er komið að stórmóti númer tvö í Padelhöllinni.

Fyrsta mótið heppnaðist vel og nú stefnum við á að gera næsta mót enn glæsilegra! 

Fyrst verður spilað riðlakeppni þar sem fjögur lið eru í hverjum riðli og öll lið spila gegn hvert öðru. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í útsláttarkeppni.

Á laugardeginum verður boðið upp á morgunverð og kaffi fyrir keppendur og á sunnudeginum verða veitingar og verðlaunaafhending þar sem við gerum upp mótshelgina. 

Mótinu er skipt í þrjú styrkleikastig. Hægt er að skrá sig með því að smella á viðeigandi flokk hér að neðan. 

Byrjendur – kvennaflokkur
Byrjendur – karlaflokkur
Lengra komnir – kvennaflokkur
Lengra komnir – karlaflokkur
Meistaraflokkur – kvennaflokkur
Meistaraflokkur – karlaflokkur
Mixed flokkur (kk+kvk saman í liði)

Fyrir þá sem vilja spila í fleiri en einum flokki er 50% afsláttur af öðrum flokki. Til þess að fá afsláttinn þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á padel@padelhollin.is. 

Hvaða flokk á ég að velja?

  • Byrjendur – kvennaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað padel í minna en ár, kunna leikreglur en eru enn að ná tökum á helstu grunnatriðum leiksins. Miðað er við level 1,5-3.
  • Byrjendur – karlaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað padel í minna en ár, kunna leikreglur en eru enn að ná tökum á helstu grunnatriðum leiksins. Miðað er við level 1-3. 
  • Lengra komnir – kvennaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað í meira en ár, hafa góða grunnþekkingu á helstu slögum, þekkja taktík leiksins og kunna að nýta veggina. Miðað er við level 3-4,5
  • Lengra komnir – karlaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað í meira en ár, hafa góða grunnþekkingu á helstu slögum, þekkja taktík leiksins og kunna að nýta veggina. Miðað er við level 3-4,5
  • Meistaraflokkur – kvennaflokkur er fyrir vana spilara sem hafa spilað padel í lengri tíma, spila reglulega nokkrum sinnum í viku og hafa góða stjórn á helstu slögum og taktík leiksins. Miðað er við level 4,5+
  • Meistaraflokkur – karlaflokkur er fyrir vana spilara sem hafa spilað padel í lengri tíma, spila reglulega nokkrum sinnum í viku og hafa góða stjórn á helstu slögum og taktík leiksins. Miðað er við level 5+

Upplýsingar um level/ranking má finna hér. Ef þú ert óviss með hvaða flokk þú átt að skrá þig í endilega sendu okkur tölvupóst – padel@padelhollin.is. 
Ath: Mótsstjórn áskilur sér rétt til að sameina meistaraflokk kvenna og flokk fyrir lengra komna kvenna m.v. skráningu í meistaraflokk.

Verð

Verð er 8.500kr á mann. Við skráningu greiðir einn aðili fyrir báða spilara. 

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki. 

Mótstjóri

Luis Carrillo verður mótstjóri.  Mótsstjóri og skipuleggjendur áskilja sér rétt til að gera breytingar á fyrirkomulagi mótsins ef þörf krefur.

Hægt er að hafa samband við hann í síma 764 7568 ef einhverjar spurningar vakna. Einnig hægt að senda tölvupóst á padel@padelhollin.is fyrir upplýsingar.