Haustmót Padelhallarinnar 2026
Stórmót
20. - 22. nóvember
Þá er komið að stórmóti númer tvö í Padelhöllinni.
Fyrsta mótið heppnaðist vel og nú stefnum við á að gera næsta mót enn glæsilegra!
Fyrst verður spilað riðlakeppni þar sem fjögur lið eru í hverjum riðli og öll lið spila gegn hvert öðru. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í útsláttarkeppni.
Á laugardeginum verður boðið upp á morgunverð og kaffi fyrir keppendur og á sunnudeginum verða veitingar og verðlaunaafhending þar sem við gerum upp mótshelgina.
Mótinu er skipt í þrjú styrkleikastig. Hægt er að skrá sig með því að smella á viðeigandi flokk hér að neðan.
Byrjendur – kvennaflokkur
Byrjendur – karlaflokkur
Lengra komnir – kvennaflokkur
Lengra komnir – karlaflokkur
Meistaraflokkur – kvennaflokkur
Meistaraflokkur – karlaflokkur
Mixed flokkur (kk+kvk saman í liði)
Fyrir þá sem vilja spila í fleiri en einum flokki er 50% afsláttur af öðrum flokki. Til þess að fá afsláttinn þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á padel@padelhollin.is.
Hvaða flokk á ég að velja?
- Byrjendur – kvennaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað padel í minna en ár, kunna leikreglur en eru enn að ná tökum á helstu grunnatriðum leiksins. Miðað er við level 1,5-3.
- Byrjendur – karlaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað padel í minna en ár, kunna leikreglur en eru enn að ná tökum á helstu grunnatriðum leiksins. Miðað er við level 1-3.
- Lengra komnir – kvennaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað í meira en ár, hafa góða grunnþekkingu á helstu slögum, þekkja taktík leiksins og kunna að nýta veggina. Miðað er við level 3-4,5
- Lengra komnir – karlaflokkur er fyrir þá sem hafa spilað í meira en ár, hafa góða grunnþekkingu á helstu slögum, þekkja taktík leiksins og kunna að nýta veggina. Miðað er við level 3-4,5
- Meistaraflokkur – kvennaflokkur er fyrir vana spilara sem hafa spilað padel í lengri tíma, spila reglulega nokkrum sinnum í viku og hafa góða stjórn á helstu slögum og taktík leiksins. Miðað er við level 4,5+
- Meistaraflokkur – karlaflokkur er fyrir vana spilara sem hafa spilað padel í lengri tíma, spila reglulega nokkrum sinnum í viku og hafa góða stjórn á helstu slögum og taktík leiksins. Miðað er við level 5+
Upplýsingar um level/ranking má finna hér. Ef þú ert óviss með hvaða flokk þú átt að skrá þig í endilega sendu okkur tölvupóst – padel@padelhollin.is.
Ath: Mótsstjórn áskilur sér rétt til að sameina meistaraflokk kvenna og flokk fyrir lengra komna kvenna m.v. skráningu í meistaraflokk.
Verð
Verð er 8.500kr á mann. Við skráningu greiðir einn aðili fyrir báða spilara.
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki.
Mótstjóri
Luis Carrillo verður mótstjóri. Mótsstjóri og skipuleggjendur áskilja sér rétt til að gera breytingar á fyrirkomulagi mótsins ef þörf krefur.
Hægt er að hafa samband við hann í síma 764 7568 ef einhverjar spurningar vakna. Einnig hægt að senda tölvupóst á padel@padelhollin.is fyrir upplýsingar.