US Open 2021 heiðurstennismótið verður haldið dagana 10. – 12. september.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Einliðaleiks Supertiebreak
Keppt verður einungis í svokölluðum “Super tiebreak” og er þátttakendum skipt í flokka eftir styrkleika. Takmörkuð þátttaka er í þessum flokk og komast þeir að sem eru efstir á ITN listanum eða eru metnir í topp 36 á listanum ef þeir eru ekki nú þegar á honum. - Tvíliðaleikur kvenna 35+
Keppt verður í tvíliðaleik þar sem hver umferð er spiluð með nýjum meðspilara. Einungis konur 35 ára eða eldri geta skráð sig í þennan flokk. Hámark 40 þátttakendur! - Tvenndar- og tvíliðaleikur
Keppt verður í tvenndar- og tvíliðaleik og getur hver sem er tekið þátt. Hámark 40 þátttakendur!
Síðasti skráningardagur er 8. september 2021, skráning fer fram hér.
Við minnum þátttakendur á að enn gilda almennar umgengnisreglur í Tennishöllinni vegna COVID. Við biðjum alla því um að huga að tveggja metra reglunni og spritta sig/þvo sér um hendur þegar mætt er á svæðið ásamt því að forðast snertingu á sameiginlegum snertiflötum.
Verð:
Einn flokkur – 5.000 krónur
Tveir flokkar – 7.500 krónur
Mótstjóri:
Diana Ivancheva – S: 779 5318