Smellið á myndina til þess að stækka
21. – 24. október næstkomandi fer fram Lindex Stórmótið í tennis og padel. Mótið er fyrir alla fjölskylduna en keppt er í flokkum fyrir alla aldurshópa ásamt sérstöku fjölskyldumóti, svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi!
Þátttökugjöld í hverjum flokki eru:
Fullorðnir:
Einliðaleikur: 6.000 kr
Tvíliðaleikur: 3.000 kr
Börn og unglingar:
Einliðaleikur: 3.000 kr
Tvíliðaleikur: 2.000 kr
Síðasti skráningardagur er: 18.október.
Opnunarhátið fer fram á föstudaginn 22.október kl. 19:00 með Högna Egilssyni, einum ástsælasta tónlistarmanni landsins, og Alberti Þóri Magnússyni, forseta Lindex á Íslandi. Allir þátttakendur velkomnir.
Mini tennis mótið fer fram á föstudaginn 22. október frá 17:00 – 19:00.
Haldið verður fjölskylduskemmtimót föstudagskvöldið 22. október kl. 19:30-23:00.
Einnig er keppt í meistaraflokki/opnum flokki með ITN (International Tennis Number) kerfi. Kerfið virkar þannig að hver þátttakandi kemur inn í mótið skv. sínum styrkleika og allir ættu að fá góða leiki.
Sunnudaginn 24. október fara úrslitaleikir mótsins fram, en lokhóf mótsins hefst kl. 18:00 samdægurs.
Klæðnaður: Litríkur. Veitt verða verðlaun fyrir litríkasta klæðnaðinn á lokahófinu.
Lindex gefur öllum þátttakendur sérstök þátttakenda verðlaun.
Mótstjóri:
Diana Ivancheva
779 5318
Vinsamlegast gangið frá skráningu hér!