Mótskrá Jólamóts Tennishallarinnar er nú tilbúinn, hægt er að sækja hana hérna á PDF formi.
Keppt er í einliðaleik og tvíliðaleik á mótinu.
Dagana 19-22 desember er keppt í :
Mini tennis, 10-, 12-, 14-, 16-, og 18 ára og yngri
Mótstjóri er Andri Jónsson
Á milli jóla og nýárs, dagana 27-30 desember er keppt í:
ITN flokki sem er fyrir alla. Einnig er keppt í 30+, 40+ og í byrjendaflokki og tvenndarleik.
Mótstjórar eru: Jónas Páll Björnsson og Grímur Steinn Emilsson
Tímatafla kemur þar upp 18.desember kl. 17.
Síðasti skráningardagur er 16.desember og hægt er að skrá sig með því að fylla út formið hér að neðan.
Úrslitaleikur, verðlaunaafhending og pizzapartý hefst 30. desember kl. 16.
Vertu með í stærsta móti ársins
Mótsgjöld í fullorðinsflokkum eru:
- Einliðaleikur: 2800 kr
- Tvíliðaleikur: 1600 kr
- Mótsgjöld í barnaflokkum eru:
- Einliðaleikur: 1500 kr
- Tvíliðaleikur: 1.000 kr
- Mini tennis: 1.000 kr
- Verð í ITN flokk fyrir börn 16 ára og yngri er 1500 kr