Byrjendanámskeið fyrir fullorðna

Byrjendanámskeið í tennis eða padel!

Við reynum að hjálpa öllum að komast af stað í tennis eða padel. Þessi námskeið eru bæði skemmtileg og góð leið til fá skemmtilega hreyfingu og læra um leið frábæra íþrótt.  Boltar og spaðar eru á staðnum. Þú getur komið ein/n á svona námskeið eða í hópi vina eða fjölskyldu. Við getum boðið upp á ýmsar útfærslur af námskeiðum, t.d. sérstök kvenna-, karla-, og paranámskeið og námskeið fyrir fyrirtækjahópa. Þjálfarar Tennishallarinnar eru sammála því að þetta sé besta leiðin til að byrja í tennis. Mikil eftirspurn er eftir námskeiðum og við gerum okkar besta til að koma þér að eins fljótt og hægt er. Gott er að mæta í íþróttafötum og íþróttaskóm, spaða og bolta færðu á staðnum! Sjáumst í Tennishöllinni, Dalsmára 13!

Fyrirspurn um námskeið

Skrifið athugasemd með óska tímasetningu

 Verð námskeiða má sjá í verðskrá eða á Sportabler skráningarsíðunni.