Tennis og padel ferðir í sumar 2026
Tennisferð til Almería 13. - 20. maí
Tennisferð til Almería í frábæru umhverfi með skemmtilegu fólki. Skráning gengur vel og það eru aðeins nokkur laus pláss eftir.
Innifalið í ferðinni
Flug með Icelandair til Málaga (20 kg farangur og 10 kg handfarangur)
- Rútuferðir til og frá flugvelli og daglega á milli hótels og tennis klúbbs
- Hótel gisting á 4 stjörnu hóteli
- Tennis í um 3 klukkustundir á dag
- Social tennis og sameiginlegir kvöldverðir í klúbbnum
- Dagsferð í golf, spa og mat á La Envía Golf ( Skráning 18,000 kr aukalega)
Verð
2 í Superior double room – 300.000 kr./ mann
1 í Superior herbergi – 350.000 kr./mann
Hafið samband við fararstjóra varðandi uppfærslu á herbergi. Hægt er að dreifa greiðslu.
Fararstjórar:
- Lusi Carillo Rueda
- Jónas Páll Björnsson
- Teitur Ólafur Marshall
Skráning:
Spadaferdir@tennishollin.is
Tennis og padel ferð TFK 3. -10. júní
Tennisfélag Kópavogs fór síðast í keppnis- og æfingaferð til Albir á sama klúbb haustið 2024. IQL er tennis- og padelklúbbur með 10 tennisvelli og 5 padelvelli auk veitingasölu, sundlaug og líkamsræktaraðstöðu.
Ferðin er fyrir börn, unglinga og foreldra. Foreldrum gefst kostur á að skrá sig í tennis eða padel prógram. Þetta er því tilvalin fjölskylduferð!
Upplýsingar
Dagssetning: 3.-10. júní 2026
Staðsetning: Albir á Spáni.
Farastjórn og umsjón: Egill Sigurðsson, Jónas Páll Björnsson og Sofia Sóley Jónasdóttir.
Fyrir hverja er ferðin? Ferðin er fyrir þá tennisiðkendur sem eru byrjaðir að spila á venjulegum velli og byrjaðir að keppa í mótum.
Ferðin er fyrir þá padelspilara sem hafa verið að æfa reglulega og vilja taka leikinn á næsta stig.
Börn þurfa að hafa náð 13 ára aldri til að mega fara í ferðina án forráðamanns
Forrráðamenn geta skráð sig í tennis/padel prógram á sama tíma
Flug og samgöngur
Ferð upp á flugvöll KEF: Ekki innifalið, þátttakendur þurfa að koma sér sjálf upp á völl. Mælst er til þess að mæta amk. 2 klst fyrir flug upp á völl.
Flug út: KEF-ALC kl. 09:55 Flugnúmer FI584
Flug heim: ALC-KEF kl 17:35 Flugnúmer FI585
Rúta frá ALC flugvelli til gististaðar: Innifalið. Rúta keyrir hópinn í 40 mín til Albir á hótelið Albir Playa Hotel & Spa.
Gisting: Albir Playa Hotel & Spa, 4* hótel. Fyrir börn yngri en 18 ára sem ferðast án forráðamanna þurfa forráðamenn að undirrita skjal um að barnið megi gista án þeirra.
Innifalið í ferðinni: Flug með check in farangri. Rútuferð til og frá Alicante flugvallar. 4* Hótel með morgunmat á Albir playa hotel & spa. Vatn og orkustykki og hádegisverður í IQL þrisvar sinnum.
Æfingarfyrirkomulag: Æfingar verða í klúbbnum IQL, nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar en þjálfarar klúbbsins munu sjá um æfingarnar og skipulag í samráði við íslensku farastjórana.
Keppnisfyrirkomulag: Í vinnslu, auglýst síðar.
Verð: Í vinnslu.
Verðviðmið m.v. 2 í herbergi;
Börn/unglingar: 230.000 kr.
Forráðamenn í tennis/padel: 290.000 kr.
Forráðamenn án prógrams: 200.000 kr.
Tökum fram að samningarviðræður eru í vinnslu en birtum þessar tölur til að gefa hugmynd að því verði sem talið er líklegast.
Takmarkað sætapláss:
Skráning: Sendu email á tennis@tennishollin.is með nafn, kennitölu og síma til að tryggja þér sæti í ferðina.
Skjöl : Samþykkisyflirlýsing vegna utanlandsferða barna fyrir undir 18 ára.