5. Stórmót TSÍ og Haustmót TFK verður haldið 21.-23.nóvember næstkomandi. Mótinu er skipt í tvo flokka – “Míni Tennis” fyrir yngstu keppendurna, 10 ára og yngri, og svo er keppt í ITN styrkleikaflokki fyrir alla aðra.
Markmið ITN styrkleikakerfisins er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið.
Þátttökugjald:
Einliðaleikur – 500 kr./míni tennis; 1.500 kr./fædd e. 1990; 2.000 kr./aðrir
Tvíliðaleikur – 500 kr./fædd e.1990; 500 kr./aðrir
Skráning: Skráningu er lokið
Síðasti skráningar (og afskráningar!!) dagur fyrir mótið er 18. nóvember, kl. 18.00
Mótskrá: Má nálgast hérna, Einliðaleikur – Tvíliðaleikur
Mótstjóri: Andri Jónsson GSM: 866-4578 Netfang: andrijo84@hotmail.com
Mini tennismótið fyrir 10 ára og yngri verður á mánudaginn, 23.nóvember og hefst kl 14:30.
Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikinn í einliðaleik sem hefst kl 16:30 á mánudaginn.
Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
- 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
- 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
- 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
- 16 mínútum of seint = tapar leiknum
Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja.